Skýjageymsla fyrir byrjendur
Hvernig byrja ég á því að nota ský?
Þetta er námskeið fyrir þá sem eru að byrja nýta sér skýjageymslur. Við skoðum fjórar vinsælustu skýjageymslurnar og hvernig við getum byrjað að nýta okkur þær. Við skoðum hvað skýjageymsla er og helstu kosti þess að nýta sér skýjageymslur.
Leiðbeinandi
Hermann Jónsson hefur starfað í tölvubransanum í fjölda ára, m.a. sem framkvæmdarstjóri hjá tölvuskólanum Isoft, tölvuskólanum NTV og sem fræðslustjóri Advania. Hermann hefur margra ára reynslu sem kennari í upplýsingatæknigeiranum.
Algengar spurningar
Hvenær byrjar og hvenær endar námskeiðið?
Námskeiðið hefst núna og endar aldrei. Þú stjórnar hraðanum, námskeiðið hefst og endar þegar þú vilt.
Hvað ef ég er óánægð/ur með námskeiðið?
Ef þú ert óánægð/ur með námskeiðið hefur þú 30 daga til að hafa samband við okkur og fá endurgreitt